Sælt veri fólkið sökum óvenju mikla anna hefur lítill tími verið til að blogga eitthvað af viti tja ja og líka sökum netleysis en allavega byrjum á byrjuninni

USA
Ammríkuferðin var æðisleg í alla staði og Evert alltaf sami höfðinginn heim að sækja og ekki fór illa um okkur þremenningana í ameríkunni total afslöppun sól og sæla og hinir ýmsu skemmtigarðar tja ja og verslanir heimsóttar

Flugum meiraðsegja einn rúnt með Evert og eru til sönnunargögn um það á myndavélinni,skulum bara segja að maðurinn hafi oft verið rólegri í flugvél en þetta var barasta fínt

Tja löggumaðurinn er samt alveg efni í gott blogg en það verður bara að gerast síðar
Frasi : are you gonna teach me the law er eitthvað sem ég mun seint gleyma

Flutningur
Tja svo gerðust loksins undrinn og stórmerkinn að maðurinn gerðist rígfullorðin,keypti sér íbúð og við tók málningarvinna þar sem hýbílin höfðu sennilega ekki verið máluð í ein 20 ár eða svo. Ég vill þakka öllum mínum yndislegu vinum og ættingjum sem hjálpuðu mér þvílikt í þessum framkvæmdum sem og öllum þessum endalausu flutningum alla tíð án ykkar veit ég ekki alveg hvar ég væri í dag svei mér þá. ívar fær hér með titilinn yfir loftmálari og Hrefna er klárlega alt mugligtkona dauðans þegar kemur að lakki tja og rafmagi

Ég kem svo til með að posta innflutningsgjafalistanum hér á bloggið fyrr en síðar

En allir velkomnir í litla hreiðrið mitt í fossvoginum kaffikannan alltaf klár tja og með því líka bara hver veit
Er svo að læra að vera svona einn en þar sem flestir vita hefur það ekki gerst hjá manninum svona ca síðan hann flutti suður í borgina að undanskildum tveim mánuðum á eggertsgötu að maðurinn hafi ekki meðleigjanda. Sökum þess finnst mér ég alveg fara að verða skildugur að finna mér kærasta

nei nei ekkert möst svona bara smá grín finnst eins og ég sé að verða kominn á tíma

virðist bara ekkert ganga í þeim efnum nema einhverjir bjánar get svarið að ég þarf að fara í nornabúðina á vesturgötunni og fjárfesta í eins og einni fávitafælu

Núið
svo er bara skollinn á kreppa svei mér vissi að kæmi að þessu en jæja það sem drepur okkur ekki herðir okkur bara ekki satt ? Verðum bara að vera bjartsýn á þetta þýðir ekkert annað
Jæja gott fólk er búinn að taka svona það helsta ætla að fara gera eitthvað gáfulegt svona áður en haldið verður í bólið
Ykkar Kle kveður að sinni ...
it's not fast food it's wendys